SNJÖLL TÆKNI
Með henni er ferðalag frá fjölförnustu götunum til ævintýralegustu slóðanna svo auðveld – ýttu bara á takka. Þökk sé Traction+, framsækna stjórnkerfinu sem tryggir framúrskarandi afkastagetu þegar keyrt er í snjó eða á hálu yfirborði.
Með henni er ferðalag frá fjölförnustu götunum til ævintýralegustu slóðanna svo auðveld – ýttu bara á takka. Þökk sé Traction+, framsækna stjórnkerfinu sem tryggir framúrskarandi afkastagetu þegar keyrt er í snjó eða á hálu yfirborði.
Með Uconnect™, gegnum 5 eða 6.5 tommu snertiskjá geturðu stjórnað öllum þeim margmiðlunartækjum sem fyrir hendi eru í bílnum: analouge og stafræna útvarpið (DAB) og megin tækin (margmiðlunarspilari, iPod, iPhone, snjallsími) tengd gegnum USB tengið og AUX-inn tengi.
Uconnect Radio Nav 5 tommu tækið býður upp á TomTom 2.5D leiðsögn um leið og 6.5 tommu Uconnect Radio Nav býður upp á gervihnatta leiðsögn með þrívíddar kortum, samfelldri leiðsögn og ‘Eins Skiptis Raddskipun’ til að skrá heimilisföng með raddskipunum.
Hið nýja Uconnect™ LIVE kerfi leyfir viðskiptavinum einnig – með samtengingu við snjallsíma þeirra – að nota mörg smáforrit í innbyggða kerfinu svo þeir geti alltaf verið í sambandi við vini sína á Twitter; hlustað á 35 milljón lög á Deezer og yfir 100 þúsund útvarpsstöðvar með Tune-in; fengið rauntíma fréttauppfærslur frá Reuters og um umferðina, hraðamyndavélar og veður, þökk sé TomTom beinlínuþjónustu.
Og þar með er ekki upptalið: þú getur bætt aksturslag þitt með eco:Drive™ svo þú sparir eldsneyti og getir athugað CO2 losun bílsins þíns í rauntíma.
Og þú getur verið samstíga bílnum þínum með my:Car: minnir þig á hvar þú hefur lagt bílnum, upplýsir þig um eldneytismagn og hvers kyns frávik ökutækisins.
Með sínum 5 tommu snertiskjá í lit eru samskipti við símann þinn, snjallsímann, útvarpið, tónhlöðu og margmiðlunarspilara meðan á akstri stendur einfaldari og auðveldari en nokkru sinni fyrr. Með Bluetooth® geturðu hringt án þess að taka hendurnar af stýrinu og sinnt hvaða textaskilaboðum sem þú færð. Og til að bæta lífsnautn við ferðir þínar er útvarpið ásamt geislaspilara einnig með stafrænt útvarp samkvæmt ósk þinni og getur spilað utanaðkomandi útsendingar gegnum USB og AUX-inn tengi. Til viðbótar getur frumlega hljóðstreymið endurflutt lög og vefútvarp frá snjallsíma þínum án þess að nokkrar snúrur komi þar við sögu.
Viltu læra að spara eldsneytisnotkun og tengdan kostnað um allt að 16%? Fiat 500L eco:Drive LIVE kennir þér hvernig. Hvert sinn sem þú sest undir stýri skráir hugbúnaðurinn hegðun þína og sýnir eco:Index þitt á “Uconnect™ 5” Radio og gefur þér vísbendingar í rauntíma til að hjálpa þér að leiðrétta mistök og bæta aksturslag þitt. Í lok þjálfunarinnar ertu tilbúinn að fara inn í eco:Ville samfélagið og deila árangri þínum á Facebook og Twitter.
Í þínum 500L Trekking geturðu hlustað á alla þá tónlist sem þú vilt: í margmiðlunarspilaranum þínum, snjallsímanum þínum eða af USB lykli. Og þú getur auðveldlega valið það með því að nota stjórnrofana í stýrinu. Það sem meira er, nýju hágæðahljómtæki hans sem þróuð hafa verið í samstarfi við Beats Audio, styðjast við háþróað tónjöfnunarforrit sem skapar hreinan háskerpuhljóm. Gegnum 6 hátalara í fram- og afturhurðum, 1 bassahátalara í farangursrýminu og 8-rása stafrænan magnara getur nýja hljóðkerfið skilað krafti upp á 520 vött.